|
Félag íslenskra atvinnuflugmanna sendi formann sinn og framkvæmdastjóra til Akureyrar þar sem þeir Jóhannes Bjarni flugmaður og formaður og Kjartan Jónsson flugmaður og framkvæmdastjóri afhentu Flugsafni Íslands góðar gjafir sem félagið hefur haldið utan um nokkuð lengi. Meðal gjafa FÍA er flugskírteini númer 2, en Björn Eiríksson var handhafi þess. Einnig afhentu þeir logbækur, skráðar upplýsingar Björns og fleiri glæsilega og ómetnalega muni. Einni fékk safnið áritaða sögu FÍA, flugmannatal og fleira fallegt.
|