| Stofnun Hollvinafélags Flugsafns Íslands |
|
|
|
|
Stofnun Hollvinafélags Flugsafnsins Að kvöldi 29. september 2011 var Hollvinafélag Flugsafns Íslands stofnað í húsnæði safnsins á Akureyrarflugvelli. Markmið félagsins er að styðja við starfsemi safnsins og efla tengsl þess við almenning. Á stofnfundinn mættu u. þ. b. 20 manns og síðan hafa nokkrir bæst í hópinn. Þar var einnig skipuð undirbúningsnefnd, sem ýta á starfsemi félagsins úr vör. Fyrsta verkefni hins nýstofnaða félags er að klæða innan Bretabragga, sem settur var upp í safninu, og stendur vinna við það yfir um þessar mundir. Þar verður í framtíðinni hægt að tylla sér niður og fá sér kaffisopa og e. t. v. vöfflubita með. |






