| Gamlir vinir |
|
|
|
|
Með hjálp góðra manna hefur tekist að festa kaup á stjórnklefa Boeing 727-108C Flugfélags Íslands, TF-FIE, fyrir hönd Flugsafns Íslands á Akureyri. Þessi flugvél var fyrsta þotan í eigu Íslendinga og markaði tímamót í íslenskri flugsögu þegar hún kom til landsins þann 24. júní árið 1967. Hún var í notkun hérlendis á vegum Flugfélagsins og síðar Flugleiða fram í ársbyrjun 1985. Í september árið 1979 fékk vélin einkennisstafina TF-FLH til samræmis við aðrar flugvélar Flugleiða sem nú báru allar einkennisstafi í "FL-" seríunni. Hún var í eigu Flugleiða þar til í janúar árið 1984 að TF-FLH var seld fyrirtækinu TAG Leasing í Bandaríkjunum, en var leigð svo af þvi fyrirtæki fram til febrúar 1985. Var vélin þá afskráð á Íslandi og fékk einkennisstafina N727TG. Hún var síðar seld UPS pakkaflutningafyrirtækinu og var endurskráð N936UP. UPS átti um 40 Boeing 727-100 flugvélar sem allar fengu "andlitslyftingu" sem m.a. fólst í því að skipt var um hreyfla og mælitæki í flugstjórnarklefanum. N936UP var í notkun hjá UPS þar til að henni var lagt í Roswell í Nýju Mexikó þann 24. júli árið 2007. Heildarflugtími vélarinnar þegar var tekin úr notkun var 48.581 klukkustund og heildarhreyfingar 31.647. Í lok aprílmánaðar 2008 fóru Hafþór Hafsteinsson og Pétur P. Johnson utan til að fylgjast með því þegar flugstjórnarklefi "Gullfaxa" var skorinn frá búk vélarinnar. Klefinn var síðan fluttur á lágvagni frá Nýju Mexikó til Richmond í Virginíu þaðan sem Eimskip flutti hann heim til Íslands. Eftir langt ferðalag var klefinn svo kom kominn inn á gólf Flugsafnsins þann 24.júlí 2008, en þá var liðið eitt ár upp á dag frá því að N936UP var lagt í Roswell. Það er hinsvegar margt sem á eftir að gera við stjórnklefann áður en hann verður sýningarhæfur, en stefnt er að því að hann verði afhjúpaður við hátíðlegt tækifæri þann 1.nóvember n.k.. Boeing 727-108C, raðnúmer 19503, TF-FIE, Allt eru þetta flugvélar sem gengdu mikilvægu hlutverki á atvinnuflugsögu Íslands á árunum 1967 og fram til 1990. Það hafa ýmsir aðilar lagt hönd á plóginn við að koma stjórnklefa Gullfaxa heim til Íslands. Fremstir í flokki eru Icelandair, Hafþór Hafsteinsson og Eimskipafélag Íslands. Er þeim og öðrum sem hafa komið að þessu verkefni færðar bestu þakkir fyrir sitt framlag og stuðning við Flugsafn Íslands.
|



















