Icelandic(IS)English (United Kingdom)
Fréttir frá Flugsafni Íslands
Almennar fréttir af Flugsafni Íslands

Að fljúga eins og fuglarnir. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

An Airplane That Flies like A Bird. Draumur mannsins hefur löngum verið að fljúga eins og fuglarnir. Ætli þetta sé ekki að koma hjá okkur? Skoðið hér fljúgandi gervifugl.

 
Flugmerki og búningar. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
IMG_1112a

Ágúst Bjarni Magnússon er tíu ára gamall og hefur mikinn áhuga á söfnun muna og merkja sem tengjast flugi og flugsögu. Áhugann hefur hann frá afa sínum, Þorsteini Einarssyni, sem hefur ólæknandi söfnunaráráttu. Þeir vinirnir gáfu Flugsafninu þessi merki sem 'Agúst Bjarni er með á myndinni, en hann hefur safnað þeim. Merkin tengjast öll flugsveitum og flugstarfsemi sem fram fór á Keflavíkurflugvelli. Einnig lánaði Þorsteinn safninu búninga frá breska hernum og þýska flughernum sem notaðir voru í seinni heimsstyrjöldinni. Merkjunum og búningunum verður komið fyrir á viðeigandi stað í safninu. 

 

 
ÖRNINN fær fullt afl. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Waco_fr_mtor_005b

Þá er komið að því! WACO-inn var dreginn á verkstæði til að fá stjörnumótorinn í nefið. Vélin kom mótorlaus til landsins því hann var tekinn "upp" í Bandaríkjunum. Nú er hann kominn heim og Helgi Stefánsson flugvirki ætlar að koma honum á sinn stað á næstu dögum. Hver veit nema WACO-inn sjáist á lofti yfir Akureyri fljótlega. Það væri ekki amarlegt að sjá slíka vél fljúgandi, því hún er eins og fyrsta flugvélin sem Flugfélag Akureyrar,síðar Flugfélag íslands, keypti með góðri aðstoð Kaupfélags Eyfirðinga1937.

 

 

 

 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 2 af 18