Vetraropnunartími: Á laugardögum frá kl.14:00 - 17:00 á öðrum tímum eftir samkomulagi
NÝROPNUNARTÍMISUMARIÐ 2010!
Frá 1. júní til 31. ágúst Alla daga frá kl.11:00 - 17:00 á öðrum tímum eftir samkomulagi
Út er komin vegleg bók á vegum Flugsafns Íslands og eru útgefendur Arngrímur B. Jóhannsson & Flugsafn Íslands, Akureyri. Pétur P. Johnson ritstýrði og er aðalhöfundur efnis. Bókin hefur að geyma ágrip af sögu Flugsafnsins ásamt lýsingu á sýningargripum. Einnig eru nokkrar frásagnir úr íslenskri flugsögu. Það er m.a. sagt frá Fairey Battle vélinni sem fórst á Tröllaskaga árið 1941, sagt frá fyrsta farþega- og póstfluginu hérlendis árið 1928 og sagt frá "Vífilsstaðavélinni". Ennfremur eru taldir upp nokkrir merkisviðburðir í flugsögu Íslands. Bókin er 84 bls. auk kápu, 102 ljósmyndir, kostar kr. 2.500,- og er seld í Flugsafni Íslands, Akureyrarflugvelli. Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Velkomin!
Flugsafn Íslands er staðsett á Akureyrarflugvelli í nýju húsnæði sem er rúmlega 2200 fermetrar að stærð. Þar inni er að finna fjölbreytt úrval flugvéla og annarra sýningargripa sem tengjast íslenskri flugsögu. Þar er einning að finna fjölda ljósmynda sem sýna mismunandi tímabil í flugsögunni.
Verið velkomin í heimsókn í Flugsafn Íslands! Í sumar er opið alla daga frá kl. 11:00 til kl. 17:00 á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst. Í vetur (2009-2010) verður safnið opið á laugardögum frá klukkan 14:00 til 17:00. Á öðrum tímum er opið samkvæmt samkomulagi. Hópar eru sérstaklega velkomnir.