| Flughelgi Flugsafnsins verður haldin eftir Jónsmessu. |
|
|
|
|
Flughelgi Flugsafns Íslands á Akureyrarflugvelli verður haldin dagana 25.-26. júní. Þessi flugsamkoma hefur verið haldin á hverju ári í 11 ár. Þeir sem til þekkja vita að um Flughelgina verður mikið flogið og mikið talað um flug. Allur flugfloti Akureyringa og góður hluti af flugflota annarra flugmanna verður væntanlega á svæðinu. það væri gott að heyra frá ykkur varðandi hugmyndir um atriði um Flughelgina. Við segjum nánar frá þessu þegar nær dregur.
|






