|


|
Árni Sigurbergsson flugstjóri og trésmiður kom til Akureyrar með þennan forláta endursmíðaða FORD-vörubíl fyrir stuttu. Árni, sem er mikill hagleiksmaður hefur smíðað tvær forláta flugvélar af gerðinn RV-3 og RV-6. Svo er hann að smíða þá þriðju. Með flugvélasmíðinni gerði hann upp þennan gamla bíl sem hefur tilheyrt fjölskyldunni síðan 1937. FORDINN var kláraður og rann í gegnum skoðun 2008. Árni segist muna eftir því, 5 ára gamall, þegar faðir hans kom á bílnum heim túnið að Svínafelli í Nesjum. Bíllinn var notaður við bústörf í 30 ár.
Húnn Snædal flugumferðarstjóri, flugmaður og flugvélasmíður fær "tékk" á gamla FORDINN.
|
|