Icelandic(IS)English (United Kingdom)
Fréttir frá Flugsafni Íslands
Almennar fréttir af Flugsafni Íslands

Boeing 727-100 skorin úr lerki Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
IMG_1021

Boeing 727-100 skorin úr lerki. Þórarinn Sigvaldason tréskurðameistari afhenti Flugsafninu þetta módel í byrjun apríl. Þórarinn er mikill flugáhugamaður og hefur skorið svona stór módel af fleiri flugvélum. Þetta módel skar hann út 2008 og stóð það úti í garði hjá Þórarni og frú þar til það kom til safnsins.  

 

 

 

 

 
Vantar gamlar tölvur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
11949837851724523185gis-computer_glenn_rolla_01_svg_hi

Áttu gamla tölvu?

Flugsafnið á mikið af skemmtilegum ljósmyndum sem gaman væri sýna gestum. Vandamálið er aðeins það að safnið á ekki skjái eða tölvur til að sýna myndirnar. Við vitum að margir eiga eldri tölvur sem þeir nota lítið eða ekkert. Væri ekki upplagt að leyfa safninu að nýta þessar eldri tölvur? Ef þið eigið eitthvað af eldra töludóti sem þið eruð tilbúin að láta frá ykkur látið okkur vita. Kærar þakkir.

 

 

 

 
FLUGSAFNIÐ Á FACEBOOK Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 FLUGSAFNIÐ Á FACEBOOK. Þá er Flugsafnið komið á þessa heimsfrægu Facebook. Vonandi nást góð vinasambönd við flugáhugafólk víða að. Þar er hægt að ná í góðar upplýsingar, myndir og fleira. http://www.facebook.com/flugsafn

 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 8 af 18