Almennar fréttir af Flugsafni Íslands
|
|
Flugstjórnarklefinn kominn |
|
|
|
Gamlir vinir
Með hjálp góðra manna hefur tekist að festa kaup á stjórnklefa Boeing 727-108C Flugfélags Íslands, TF-FIE, fyrir hönd Flugsafns Íslands á Akureyri. Þessi flugvél var fyrsta þotan í eigu Íslendinga og markaði tímamót í íslenskri flugsögu þegar hún kom til landsins þann 24. júní árið 1967. Hún var í notkun hérlendis á vegum Flugfélagsins og síðar Flugleiða fram í ársbyrjun 1985. Í september árið 1979 fékk vélin einkennisstafina TF-FLH til samræmis við aðrar flugvélar Flugleiða sem nú báru allar einkennisstafi í "FL-" seríunni. Hún var í eigu Flugleiða þar til í janúar árið 1984 að TF-FLH var seld fyrirtækinu TAG Leasing í Bandaríkjunum, en var leigð svo af þvi fyrirtæki fram til febrúar 1985. Var vélin þá afskráð á Íslandi og fékk einkennisstafina N727TG. Hún var síðar seld UPS pakkaflutningafyrirtækinu og var endurskráð N936UP. UPS átti um 40 Boeing 727-100 flugvélar sem allar fengu "andlitslyftingu" sem m.a. fólst í því að skipt var um hreyfla og mælitæki í flugstjórnarklefanum. N936UP var í notkun hjá UPS þar til að henni var lagt í Roswell í Nýju Mexikó þann 24. júli árið 2007. Heildarflugtími vélarinnar þegar var tekin úr notkun var 48.581 klukkustund og heildarhreyfingar 31.647. Í lok aprílmánaðar 2008 fóru Hafþór Hafsteinsson og Pétur P. Johnson utan til að fylgjast með því þegar flugstjórnarklefi "Gullfaxa" var skorinn frá búk vélarinnar. Klefinn var síðan fluttur á lágvagni frá Nýju Mexikó til Richmond í Virginíu þaðan sem Eimskip flutti hann heim til Íslands. Eftir langt ferðalag var klefinn svo kom kominn inn á gólf Flugsafnsins þann 24.júlí 2008, en þá var liðið eitt ár upp á dag frá því að N936UP var lagt í Roswell. Það er hinsvegar margt sem á eftir að gera við stjórnklefann áður en hann verður sýningarhæfur, en stefnt er að því að hann verði afhjúpaður við hátíðlegt tækifæri þann 1.nóvember n.k..
Á þessari síðu eru nokkrar myndir sem Pétur P. Johnson tók í eyðimörkinni í Roswell í Nýju Mexíkó í lok apríl 2008. á flugvellinum í Roswell kennir margra grasa, en það sem mest vekur áhuga okkar Íslendinga eru þrjár flugvélar sem voru þar á vellinum;
Boeing 727-108C, raðnúmer 19503, TF-FIE, Boeing 727-185C, raðnúmer 19826, TF-FIA, Douglas DC-8-63CF, raðnúmer 45936, N8631/TF-FLB
Allt eru þetta flugvélar sem gengdu mikilvægu hlutverki á atvinnuflugsögu Íslands á árunum 1967 og fram til 1990.
Það hafa ýmsir aðilar lagt hönd á plóginn við að koma stjórnklefa Gullfaxa heim til Íslands. Fremstir í flokki eru Icelandair, Hafþór Hafsteinsson og Eimskipafélag Íslands. Er þeim og öðrum sem hafa komið að þessu verkefni færðar bestu þakkir fyrir sitt framlag og stuðning við Flugsafn Íslands.
|
|
|
 |
 |
| Hafþór Hafsteinsson fyrir framan Boeing 727-108C raðnúmer 19503, N936UP. áður TF-FIE. Foto © Pétur P. Johnson. |
Fyrsta þota Íslendinga, Boeing 727-108C, TF-FIE, "Gullfaxi" bíður þess að verða rifin. Foto © Pétur P. Johnson. |
 |
 |
Númeraplata Boeing 727-108C raðnumer 19503. Foto © Pétur P. Johnson. |
Það er fátt sem minnir á það að þessi flugvél var eitt sinn stolt íslenska flugflotans. Foto © Pétur P. Johnson. |
 |
 |
Hvar eru fínu innréttingarnar sem voru eitt sinn hér. Foto © Pétur P. Johnson. |
Horft aftur eftir farþegaklefa "Gullfaxa". Foto © Pétur P. Johnson. |
 |
 |
Það er langt síðan að Íslendingur settist í vinstra sætinu á þessari flugvél. Foto © Pétur P. Johnson. |
Það gengu margir íslenskir farþegar um þessa stiga hér á árum áður. Foto © Pétur P. Johnson. |
 |
 |
|
Síðasta myndin af TF-FIE áður en skurðurinn hófst. Foto © Pétur P. Johnson.
|
Byrjað að skera! Foto © Pétur P. Johnson. |
 |
 |
Hér sést vel hvar vélin er skorin fyrir aftan farþegahurðina. Foto © Pétur P. Johnson. |
"Sólfaxi", Boeing 727-185C, TF-FIA og síðar TF-FLG. Foto © Pétur P. Johnson. |
 |
 |
Boeing 727-185C, N940UP var áður TF-FIA Flugfélags Íslands, "Sólfaxi" og var síðar skráð TF-FLG. Þessi flugvél var í notkun Flugfélagsins og síðar Flugleiða frá 1971 til 1990. Foto © Pétur P. Johnson. |
Douglas DC-8-63CF N8631/TF-FLB, "Snorri Þorfinnsson", þjónaði á flugleiðum Loftleiða og síðar Flugleiða frá 1970 og fram til ársins 1984. Foto © Pétur P. Johnson. |
|
|
Boeing 747 risaþotan átti 40 ára afmæli þann 9. febrúar 2009. Hafþór Hafsteinsson
rifjar upp ýmislegt úr sögu þessarar merku flugvélategundir í stuttri afmælisgrein.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 18 af 19 |