Logbækur

LogbókLogbækur flugmanna og flugvéla eru með dýrmætustu heimildum um flugsöguna. Útfylltar samviskusamlega segja þær sögu einstakra flugmanna, flugvéla og flugfélaga.  

Árið 2020 fékk Flugsafnið styrk úr safnasjóði til skráningar og varðveislu safnkosts. Skráning logbóka og muna úr eigu einstakra flugmanna er hluti af afrakstri þess verkefnis. Er mennta- og menningarmálaráðherra og Safnaráði færðar
kærar þakkir fyrir stuðninginn.

Á Flugsafni Íslands er varðveittur fjöldi logbóka og viðhaldsbóka. Þar á meðal er mikill fjöldi logbóka flugvéla Loftleiða og viðhaldsbóka flugvéla Flugfélags Íslands. Þá hefur varðveist mikið af logbókum flugmanna og leggur Flugsafnið metnað sinn í að varðveita þær allar um ókomna tíð. Sögulegt gildi þeirra er mikið og hafa logbækurnar m.a nýst til ýmissa fræðistarfa, kvikmyndagerðar, bókaskrifa og ljósmyndagreiningar. 


Logbækur eftirtalinna flugmanna hafa verið skráðar:

Agnar Kofoed Hansen - flugmannsskírteini nr. 3

Björn Pálsson - flugmannsskírteini nr. 72
Garðar Steinarsson - flugmannsskírteini nr. 341
Geir Garðarsson - flugmannsskírteini nr. 492
Guðjón Jónsson - flugmannsskírteini nr. 66
Jón Þ. Ísaksson - flugmannsskírteini nr. 86
Sigurður Ólafsson - flugmannsskírteini nr. 6
Valur Ragnarsson - flugmannsskírteini nr. 104
Viktor Aðalsteinsson - flugmannsskírteini nr. 60
Þorsteinn Jónsson - flugmannsskírteini nr. 545.

Þá eru skráðar logbækur flugvélarinnar TF-HIS og fjöldi logbóka flugvéla Loftleiða og viðhaldsbóka flugvéla Flugfélags Íslands.

Hér má sjá skráðar logbækur á vefsýningunni Logbækur í gagnagrunninum Sarpi.

Fleiri logbækur bíða skráningar og verður listinn uppfærður.