Arngrímur B. Jóhannsson flugstjóri 80 ára

Arngrímur B. Jóhannson flugstjóri fagnar 80 ára afmæli sínu í dag, 7. apríl.

Arngrímur fæddist á Akureyri 7. apríl árið 1940. Hann hóf flugferil sinn 14 ára að aldri hjá Svifflugfélagi Akureyrar á Melgerðismelum í Eyjafirði.

Fyrsta flugskírteini sitt fékk Arngrímur í svifflugi 1958 og sama ár lauk hann námi í Loftskeytaskólanum.  Ári síðar tók hann einkaflugmannspróf og atvinnuferill hans hófst síðan árið 1966. Arngrímur flaug tvö sumur fyrir Flugfélag Íslands á Douglas DC-3 og eitt ár hjá Norðurflugi á Beechcraft C-45H og Piper PA-23 Apache. Árið 1968 fékk hann réttindi sem siglingafræðingur.

Árið 1969 hélt hann til Biafra og flaug þar Douglas DC-6B vélum Flughjálpar með mat og aðrar lífsnauðsynjar til þurfandi í stríðshrjáðu landi. Að því tímabili loknu starfaði hann sem siglingarfræðingur og síðar aðstoðarflugmaður hjá Loftleiðum á Rolls-Royce 400 (CL-44).

Cargolux tók við árið 1971, þar sem Arngrímur var flugmaður og síðan flugstjóri á Canadair CL-44. Heim kom Arngrímur árið 1974 þegar hann gerðist yfirflugstjóri á Boeing 720 þotum flugfélagsins Air Viking. Árið 1976 var Arngrímur í framvarðarsveit við stofnun flugfélagsins Arnarflugs. Hann sat í stjórn þess félags um árabil og var yfirflugstjóri þess. Af flugvélategundum sem hann flaug á þessum árum má nefna Boeing 720B, Boeing 707, Boeing 727, Boeing 737, DHC-6 Twin Otter, Piper Cheyenne II og Piper Cheiftain.

Árið 1984 gerðist hann hluthafi í flugskólanum Flugtak. Það sama ár stofnaði hann ásamt öðrum flugfélagið Air Arctic. Arngrímur og þáverandi eiginkona hans Þóra Guðmundsdóttir stofnuðu Flugfélagið Atlanta í febrúar árið 1986. Í fyrstu voru verkefni fá. Arngrímur tók þá að sér að ferjufljúga Boeing 707 þotum til niðurrifs. Árið 1988 lagaðist verkefnastaða hins unga félags og hefur vaxið allar götur síðan og notið mikillar velgengni. Félagið átti hug og hjarta Arngríms í þau 20 ár sem hann kom að rekstri þess.

Þann 29. mars 2005 flaug Arngrímur sitt síðasta atvinnuflug. Þá átti hann að baki 19.000 flugtíma, um 600 tíma sem loftsiglingafræðingur og 200 tíma í svifflugi.

Eftir að atvinnuflugmannsferlinum lauk var Arngrímur síður en svo hættur afskiptum af flugmálum. Hann gegndi um tíma embætti forseta Flugmálafélags Íslands og situr í stjórn Flugsafns Íslands. Listflug og svifflug eru honum hjartfólgin og hann er mikill áhugamaður um íslenska flugsögu.

Arngrímur er einnig mikill áhugamaður um norðurslóðir og  kom á fót Norðurslóðasetrinu, Into the Arctic, á Akureyri árið 2017.

Stjórn Flugsafns Íslands, hollvinir þess og safnstjóri óska Arngrími innilega til hamingju með stórafmælið og þakka honum ómetanlegt framlag til Flugsafnsins og íslenskrar flugsögu.