Flugsafn Íslands
  • Safnið
    • Opnunartímar og verðskrá
    • Fyrirspurnir
    • Starfsfólk
    • Stjórn
    • Söfnunarstefna
    • Myndasafn
  • Fréttir
  • Safngripir
    • Flugvélahreyflar í safninu
    • Bílar og flugvallatæki
    • Logbækur
  • Flugsagan
    • Flug í 100 ár
    • Flogið út úr kófinu
    • Sérsýningar
      • 2004 Arngrímur Jóhannsson
      • 2005 Jóhannes R. Snorrason
      • 2006 Agnar Kofoed-Hansen
      • 2007 Guðjón Jónsson
      • 2008 Erna Hjaltalín
      • 2009 Magnús Guðmundsson og Smári Karlsson
      • 2010 Dagfinnur Stefánsso og Viktor Aðalsteinsson
      • 2013 Alfreð Elíasson
      • 2014 Loftleiðir
      • 2015 Örn O Johnson
      • 2016 Flugvirkjar
      • 2017 Icelandair 80 ára
      • 2018 Saga Flugfélags Norðurlands
      • 2019 Flug í 100 ár
      • 2020 Cargolux - Frakt í fimmtíu ár
    • Leitin að Fairey Battle
    • Björgunar- og sjúkraflug
    • Fyrsta flugið til Íslands
  • Safnkennsla
    • Verkefni og lausnir
  • Örninn - Hollvinafélag
    • Fréttir
    • Um Örninn Hollvinafélag
    • Stjórn Arnarins
    • Lög Arnarins
  • ÍSL
  • ENG
  • Opnunartímar og verðskrá
  • Fyrirspurnir
  • Starfsfólk
  • Stjórn
  • Söfnunarstefna
  • Myndasafn

Gamla safnið

  • 20 stk.
  • 26.06.2016
Flugsafn Íslands var til húsa í flugskýli númer 7 á Akureyrarflugvelli frá 1999 til ársins 2007. Safnið, sem þá hét Flugsafnið á Akureyri, var opnað með formlegum hætti þann 24. júní árið 2000. Var þá haldin í fyrsta sinn svo kallað Flughelgi á vegum Flugsafnsins og fór þá jafnframt fram Íslandsmót Flugmálafélagsins í listflugi. Hér fyrir neðan fylgja nokkrar myndir sem teknar voru í gamla safninu. Þær sýna að þrátt fyrir þröngan húsakost hafi vel tekist til við að stilla upp flugvélum og munum úr íslenskri flugsögu þannig að það varð gestum til ánægju og yndisauka.
flugsafn20
Þessar flugvélar hafa allar verið heimilisfastar á Akureyri um margra áratuga skeið.
Flugsafnið á Akureyri hefur ávallt kappkostað að vera lifandi flugsafn. Þar eru iðulega til sýnis flugvélar sem eru í fullri notkun innan um safngripi sem hafa lokið þjónustu sína.
Stinson SR-7B Reliant vél Flugsafnsins er af samkonar gerð og fyrsta flugvél Loftleiða.
Grunau IX renniflugan er fyrsta flugtæki Svifflugfélags Akureyrar. Hún er smíðuð árið 1937 og er enn í flughæfu ástandi.
Fremst á gólfinu er Grunau IX rennifluga Svifflugfélags Akureyrar en fyrir ofan er Rhönlerche II TF-SBE. Á bak við sjást EoN Olympia TF-SBB og Schweizer TG-3A TF-SBA.
Nærmynd af Lycoming stjörnuhreyfli Stinson SR-7 Reliant.
Í forgrunni á þessari mynd sést Piper J-3 Cub TF-CUB en úr loftinu hanga flugmódel af Bellanca Citabria og Piper Cub. Ennfremur sést hér sýningarsalurinn sem var á efri hæð gamla flugsafnsins.
Hér eru ýmsir fornminjar flugsins á ferðinni. T.v. sést í Grunau Baby svifflugu en til hægri sjást leifar af húsi sem var utan um flugmanninn á Grunau IX renniflugu og gegndi því hlutverki að minnka loftviðnám.
Þetta er hliðarstýri af EoN Olympia svifflugunni TF-SBB.
Grunau Baby TF-SBD sést hér á smíðaverkstæðið í gamla safninu.
Grunau IX rennifluga, Rhönlerche II sviffluga og Stinson SRö7B Reliant.
Það var ýmislegt sem fannst í flaki Fairey Battle flugvélarinnar P2330. Sagt er frá örlögum vélarinnar og áhafnar hennar annarsstaðar á síðum safnsins.
Það var ýmislegt sem fannst í flaki Fairey Battle flugvélarinnar P2330. Til vinstri sést hvernig eitt skrúfublaðið hefur bognað við áreksturinn þegar vélin rakst í jörðina. Sagt er frá örlögum vélarinnar og áhafnar hennar annarsstaðar á síðum safnsins.
Þetta er mælaborð úr Beechcraft C-45H.
Hér má sjá Schweizer TG-3A svifflugu, Bensen Gyrocopter og leifar af Waco ZKS-7.
Hér má sjá Grunau IX rennifluguna, Rhönlerche II svifflugu TF-SBE, Evans VP-1 Volksplane, Auster V, Piper J-3C-65 TF-CUB og flugmodel af Robin R2160.
Hér gefur að líta gamlir einkennisbúningar flugstjóra frá Flugfélagi Norðurlands.
Á loftinu í gamla flugsafninu voru mörg stór veggspjöld með ljósmyndum úr íslenskri flugsögu.
Farþegaflutningar með flugi innanlands hófust með flugi Flugfélags Íslands (nr.2) árið 1928. Félagið starfaði á árunum 1928 til 1931 og notaði flugvélar af gerðinni Junkers F.13 og W.33d. Ekki er vitað hver smíðaði þetta forláta módel af Junkers F.13 sem safninu áskotnaðist fyrir nokkrum árum,en myndin er tekin á Akureyri í júní árið 1928.

Flugsafn Íslands

  • Akureyrarflugvelli
  • 600 Akureyri
  • Sími: 461 4400
  • flugsafn@flugsafn.is
  • Vertu vinur okkar
    á Facebook
  • Örninn - Hollvinafélag
    Flugsafns Íslands

Hægt er að skoða safnið utan opnunartíma eftir samkomulagi. Hafið samband í síma 461 4400 / 8440104 eða sendið tölvupóst á flugsafn@flugsafn.is.

The museum is also open by appointment. To book a visit please contact: flugsafn@flugsafn.is - tel. +354 4614400 / 8440104.